Bloggsíða Siggu

Velkomin á bloggið mitt

27.01.2012 23:21:27 / sigga

Fram í heiðanna ró....

SnowdriftBank .....fann ég bólstað og bjó,

  gróf mína bifreið í snjóóóhó"....!

  Húsfreyja söng hástöfum í "ófastri og laflausri"

  bifreið sinni, yfir fréttum af á leið heim úr vinnu.

  Allt var í tjóni og tjöru uppi á Hellisheiði með snjómokstur vegna

  einhverra snilla sem höfðu ætt upp á "LOKAÐA" heiðina,

  sagði í fréttum.

  Þar voru nú bifreiðar þeirra fastar tvist og bast, þvers og kruss

  snjómokurum til angurs og ama, taugatrekkings og mergjaðrar gremju.

  Snaggaralega snarvitlaust veður hafði orðið til þess að

  Hellisheiði var lokað.

  Lokunin vel auglýst á stórum "upplýstum skiltum" og stórum búkkum komið fyrir á

  akstursleiðinni.

  Menn lögðu SAMT á heiðina.

  Enda liggur í hlutarins eðli, að "heiðarsnillar" kunna að

  lesa "á milli línanna" á vegaskiltum sem stendur á stórum stöfum:

  LOKAÐ!

  Auðvitað túlka þeir það hárétt, að á skilti þessu standi:

  "LOKAÐ...nema fyrir þig og þína herlegu bifreið, því þú ert svo

  hrikalega góður bílstjóri og bíllinn þinn frábær".

  Og framhjá búkkum sneiða þeir með "blindandi ljósið" af

  orðinu LOKAÐ í augunum, og dvelja síðan "löngum" stundum

  upp til heiða.

  Á kafi í snjó.

  Góður tími þar í bláköldum snjó, skítakulda og fárviðri þar efra,

  til að hugleiða tilgang lífsins eða hvort

  gott sé að láta landið skjálfa af mannavöldum eða

  hvort Óli ætli að bjóða sig fram aftur til forsetaembættis...nú eða

  til að rifja upp það sem þarf að kaupa í Bónus...vantar

  pottþétt tómatsósu, lauk, bland í poka og skeinipappír....

  vel á minnst...er ekkert helv....salerni hér uppi á Hellisheiði,

  svona ef mönnum skyldi verða brátt í brók?

  Og tíminn líður.

  Samkvæmt fréttum er enn verið að moka Hellisheiði nú

  undir ellefu að kveldi.

  Húsfreyja vonar samt innilega að verðandi feður,

  með eiginkonur á steypinum hafi ekki farið sér

  að voða á heiðinni í dag, né heldur fólk með hjartasjúkdóma

 og önnur bráð veikindi.

  Þá er betra að leita sér hjálpar frá heilbrigðisþjónustu litla Fróns,

  hversu léleg sem hún er orðin vegna niðurskurðar,

  og sleppa því að láta vaða á heiðina upp á von og óvon.

  Góðar stundir og megi öll ykkar ferðalög eiga farsælan endi.

         Ave    Sigga

  PS  Finnið mig einnig sem blavatn á mbl-blogginu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2012 20:11:32 / sigga

Rotvarin, erfðabreytt og iðn-saltpækluð....

salt-pepper-shaker-batteries  ....um þessar mundir, húsfreyja, samkvæmt nýjustu

  fréttum af því sem hún raðar ofan í sig sem mat.

  Húsflugur steindrepast bara við það að húsfreyja "andi" á þær.

  Húsfreyja ekki fengið kvefvírus síðan á því herrans ári 2008....

  kvefvírusar eiga engan sjens, svo EITRUÐ er konan orðin.

  Kveikir nú húsfreyja á þremur sprittkertum í stofunni,  með einu freti en

  heimiliskötturinn felur sig ofan í baðkari inni á baði

  á matmálstímum, enda extra fín loftræsting á baðherbergi húsfreyju.

  Stofublóm húsfreyju skarta fjólurauðum laufblöðum með gulum

  doppum...og eitt þeirra át um daginn vinnupeysu bónda ásamt

  slatta af sokkum.

  Hehehehehe...stóðst ekki mátið, húsfreyja.

  Alveg með ólíkindum hvað við setjum ofan í okkur villt og galið,

  grunlaus og barnaleg.

  En altént ættum við að vera vel "iðnvædd" hér uppi á litla Fróni,

  hvað sosum hollustuna varðar.

  Góðar stundir, og munið að "salta" vel hafragrautinn og eggið í fyrramálið.

                  Ave     Sigga


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2012 23:26:39 / sigga

2011 versus 1971

funny-dog-pictures-baff-ready Húsfreyja var að glugga í dagbók sína.

  "Humm...hálf flatneskjulegt ár 2011...hvorki gekk né rak

  í einu eða neinu".

  DÆS.

  "Tómur barningur á öllum sviðum, meira eða minna" hélt

  hún áfram þönkum sínum.

  Icesafe-sagan endalausa hélt velli-"Engin Jól án Icesafe" og "ekki

  er stefna stefna nema pottþétt- Icesafe, sé".

  Heilbrigðiskerfið niðurskorið, sneitt og nagað inn að merg, með verri

  gæðum þjónustu í kjölfarið:

  Gamla fólkið skorið niður, öryrkjar skornir niður, sjúklingar

  að bera gífurlegan kostnað af lífsnauðsynlegum aðgerðum. t.d

  konur með brjóstakrabbamein.

  Bankasukksagan "óáþreifanlega" og óendanlega hélt sömuleiðis áfram....

  virðast innmúraðir og steyptir fastir í sama gamla spillingarsvínaríinu.

  Herjólfur sigldi í Sand....nei Land...nei Þorlákshöfn meira eða minna

  allt árið.  Í Landeyjarhöfn sigldi aðeins aska, aurburður, drulla og skítur...

  "in og út um HÖFNINA og alltaf sömu leið"!

  Húsfreyja vill láta breyta Landeyjarhöfn í hrísgrjónaakur.

  Johnsen skemmti landanum með Skálholtsveseni og fornaldar kirkju-

  byggingum en sérstakur saksóknari var staurblankur miðað

  við allan þann fjölda mála sem hann þurfti að rannsaka og kæra.

  Evran fékk "krónuveikina" og dúndraði niður í víti bankaspillingar, hruns

  og kreppu.

  Gnarrinn skeit upp á bak í skólamálum, og hóf að sameina og búa til

  stærri barnaskólabákn, með minni yfirsýn og verri kennslu fyrir

  nemendur í höfuðborginni.

  En Harpan sló í gegn hjá þeim sem enn eiga nóg af peningum,

  og VIP-partýin voru haldin grimmt og galið þar niður við höfn...

  en engin partý haldin fyrir fólkið sem er að BORGA fyrir Hörpuna.

  Þá sjaldan sem einhverju af litla fólkinu tekst að aura saman fyrir

  tónleikaferð í Hörpuna, er því refsað grimmilega með

  mörg þúsund króna stöðumælasekt, vegna háleynilegra

  neðanjarðabílastæða, með borgunarkössum á vel földum

  stöðum, sem ekki einu sinni bílastæðaverðir Hörpunnar vita hvar

  eru.

  Stjórnin.....ja stjórnin, er stjórnin og Jóhanna, og svo eru auðvitað

  "djöfulsins snillingarnir" í stjórnarandstöðunni-gullin af bláu mönnunum.

  Orð Haarderans: "Guð blessi Ísland" plús viðbót frá

  húsfreyju: ..."með þessa alþingismenn" eru orð í tíma töluð...skrifuð?

  En merkilegt nokk gekk árið þokkalega upp hjá húsfreyju sjálfri.

  Sumarið var frábært, sumarfríið og ferðalögin um landið best.

  Engin dó eða veiktist alvarlega, sem er fyrir mestu.

  Vinnan var klikk...en það hefur hún verið árum saman, svo þar er ekkert nýtt.

  Fjárhagurinn bévítans basl og óréttlæti, en sömuleiðis eins og venjulega.

  Svo húsfreyja þokkalega ánægð með sitt ár, en fór þá að hugsa um árið

  1971 á því herrans ári er hún varð ellefu ára.

  Hvað vorum við Frónbúar að brasa fyrir 40 árum?

  Þá bjó húsfreyja enn í Eyjunum sínum í Grænuhlíð 20, alsæl í faðmi

  grösugra fjalla, blás himins, sægræns sjávar og yndislegrar og

  áhyggjulausrar bernsku, svart/hvíts sjónvarps-sumarfrí í 3 mánuði og ALDREI-

  sjónvarps á fimmtudögum.  Talva? I-Pad hvað?

  Samt var ýmislegt á seiði í þjóðfélagi Frónbúa.

  "Opinber rannsókn á reikningum Rannsóknaráðs ríkisins".

  Þar allt í óreiðu með síma, ferðakostnað og risnu.....eitthvað

  kunnulegt við þetta allt, er mat húsfreyju, þó hún hafi ekki hugmynd

  um, hvaða störf Rannsóknaráð ríkisins vann.

  Handritin mættu heim frá Danmörku, og Baunarnir flögguðu í

  hálfa stöng, er íslensku handritin voru sett um borð í herskipið

  á leið til Íslands.

  Jaso, hve margir Baunar skyldu hafa vitað um forníslensku handritin og

  innihald þeirra, eða haft getu til að lesa þau?  Skyldu þeir enn sakna

  handritanna, minnast þeirra og draga Dannebrogen upp í hálfa 19. maí?

  Svo var það Saltvíkurhátíðin alræmda í byrjun júní '71- um Hvítasunnu.

  Hófst sem hátíð "friðar, sátta og samlyndis", en tókst sem betur fer

  að snúa henni í hátíð "leðju, ölvunar, roks og rigningar".-Saltstokk '71?

  Landinn fékk léttan stresshroll í apríl. '71, þegar nokkrir frónverskir sveinar ákváðu

  að stofna "skæruliðasamtök" uppi á litla Fróni, og ætluðu að sprengja

  mann og annan með stolnu dýnamíti .

  Hippamenningin blómstraði, en sturlaður maður myrti konu sína

  fyrir norðan og lubbi var bannaður af KSÍ, fékk enginn "lubbi" að

  keppa með landsliðinu við Frakka, það árið.

  Hárskerar kvörtuðu um atvinnuleysi...enda enginn maður með

  mönnum árið 1971 nema með axlarsítt hár og toppinn oní augu.

  Geysir í Haukadal gaus....sápulaust.

  Bretar urðu brjálaðir enn og aftur út í Frónbúa, vegna hundabanns

  í höfuðborginni við sundin bláu.  Töluðu um "geðsjúka hundahatara"

  í fjölmiðlum, Tjallarnir..

  Svíarnir tóku í sama streng "Leyfið hundunum að lifa"- Lat hundene leva!

  Hasshundurinn hinn fyrsti kom til landsins.....hann fékk að lifa.

  Tollverðir berháttuðu Færeyinga...

  Eyjamenn fylltu eyjuna af loðnu.

  Þjóðartekjur jukust um 10,5 %.

  Uppstoppaður geirfugl var keyptur inn í landið á 1.9 milljónir.

  Glaumbær brann og fólkið fann sér annan samastað.....osfr.

  Jamm, aðrir tímar árið 1971 en Frónbúar samt alltaf einhvað að brasa.

  Betri tímar?

  Húsfreyja lætur aðra um að meta slíkt.

  Góðar stundir og gleðilegt ár 2012.


              Ave      Sigga


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2012 20:50:30 / sigga

Auglýst eftir SAKBITNUM bankamönnum...

millstone ... á litla Fróni".

  Húsfreyja var að dudda í fréttalestri inn á Vísir, og rakst

  á þessu makalausu frétt.

  "Síðan hvenær, hafa bankamenn verið "sakbitnir" hér uppi

  á litla Fróni"? hugsaði húsfreyja rasandi.

  Bankahrun, landið fallít og krónan verri en rotnandi dauð....

  allt "litla fólkinu" í landinu með flatskjána sína að kenna!

  Spyrjið bara hvaða fyrrum bankaeiganda sem er, eða stórfjárfesta og útrásavíkinga

  með hauga af fyrirtækjum í pósthólfum á Tortóla.

  Enda eins gott, að það voru við litla fólkið sem skitum upp á bak,

  en ekki bankamennirnir, fjárfestarnir og útrásarvíkingarnir,

  því við erum altént "borgunarfólk" fyrir bankahrunssvínaríinu....

  annað en hjá banka-/þotuliðinu, þar sem eina ráðið er að "afskrifa" skuldirnar,

  svo það missi ekki hallirnar ofan af sér, geti endurnýjað Rolexúrin sín og

  jeppaflotann sinn reglulega og áfram skroppið í heimsreisur 2-3 á ári.

  Enda lágmark að fá að halda þessu "smotteríi",

  þar sem búið er að taka fyrir "Elton John-afmælisveislur",

  einkaþotueign og "óáþreifanleg" hringavitleysukaup og sölu, með tilheyrandi

  milljóna þóknunum hjá blessuðum fyrrum "milljarðaeigendum" litla Fróns.

  Neipp, SAKBITNIR bankamenn og auðjöfrar uppi á litla Fróni telur húsfreyja að séu

  sjaldgæfari en fuglar þeir er geirfuglar nefnast.

  Húsfreyja telur næsta víst, að Sierra listamaður sá er

  auglýsir eftir "sakbitnu" fólki af þessu sauðarhúsi,

  fari villu vegar í leit sinni hér á norðurhjara.

  Verði sá góði listamaður að fara langt út fyrir landsteina vorrar þjóðar,

  að finna einn "sakbitinn" bankamann.....og kannski jafnvel út fyrir

  sólkerfið sjálft.

  En sakbitna "flatskjárkaupendur" með bankahrunsmyllusteininn utan

  um hálsinn, og óafskrifaða skuldaklafann á herðunum,

  getur hann hins vega fundið hér í heilu helvísku haugunum.

  Já, og þúsund tonna grjótið sem við öll,  litla fólkið drögum á eftir okkur

  í keðju um ökklann, kallast "Icesafe".

  En við erum máske ekki nógu merkilegur pappír fyrir svo frægan

  listamann, sem Sierra.......?

  Hvað veit húsfreyja?

  Góðar stundir og megi þið öll hafa efni á að sækja listsýningar og listrænar

  uppákomur a.m.k. einu sinni þriðja hvert ár.

               Ave     Sigga.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2012 22:11:17 / sigga

Ónotaleg gull af mönnum.

 flag_of_iceland_3c Það er ekki nokkur spurning að sjálfstæðismenn

  eru fremur "ónotalegt" fólk í huga húsfreyju.

  Það hefur bitur reynsla hennar af áratuga veru þessa flokks

  í stjórn landsins á árum áður kennt henni.

  Undir stjórn sjálfstæðismanna hefur viðgengist

  fordæmalaus spilling í stjórn landsins árum saman, ásamt vanrækslu og lítilsvirðingu í

  garð þjóðarinnar að mati húsfreyju.

  "Leppflokkar" þeirra sjálfstæðismanna, þ.e. flokkarnir

  sem þeir velja með sér í stjórn, eru síða þægilegir

  "sökudólgar" þegar upp kemst um svikin kosningaloforð,

  spillingu og óstjórn.

  "Framsóknarmaddaman" var hreinlega líflátin, hengd, snúin úr,

  steikt og steindrepin, eftir áratuga

  "syndaburð" með sjálfstæðismönnum í stjórn.

  Einu ástæðuna fyrir því að ekki er búið að kjöldraga,

  sökkva og drekkja Samfylkingunni, telur húsfreyja vera sú,

  að "heilög Jóhanna" tók við forystu þess flokks.

  Sú kerla er seig, hörkudugleg og rær nú lífróður fyrir þjóðina, eftir að taka við versta

  klúðri sjálfstæðisflokksins...EVER.

  Verst að konan sú er með heilmikið af "jólasveinum" í stjórn með sér,

  sem hringsnúast eins og "bollarússibanar" í tívolíi....óvanir að

  vera ekki einvörðu "leppar" fyrir Sjálfstæðiflokkinn.

  Samt skárra að hafa "jólasveinana" en "ónotalegu gullin af mönnum"

  í stjórn.

  Og sjálfstæðismenn mega alveg vera með "vonda tilfinningu",

  húsfreyja, og hana grunar að hún sé ekki ein um það,

  lifði með "vonda tilfinningu" í mörg ár, á meðan þeir sátu

  á ráðherrastólum.

  En Skaupsfólk stakk beint á meinin sjálfstæðismannanna um

  áramótin...og snéri reyndar hnífnum í sárunum hressilega...

  en þannig eru nú einu sinni Áramótaskaup, og húsfreyja telur

  að sjálfstæðismenn hafi átt skilið kaldar kveðjur frá þjóðinni.

  Allir fengu sinn skammt, Jóhanna og Steingrímur einnig.

  Húsfreyja er sátt við sitt Áramótaskaup, þó nokkrum sinnum

  færu menn og konur þar yfir strikið.

  En það er einlæg von húsfreyju að gott og heiðarlegt fólk

  "allra" flokka á Alþingi sameinist um að koma þjóðinni

  út úr þrenginunum, skapi sér þannig góðan orðstý og geti verið stolt

  af verkum sínum.

  Verkin verða síðan metin í Áramótaskaupi 2012....

  Góðar stundir.

           Ave      Sigga.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2011 19:41:09 / sigga

Hvít klessa....

...með dramatísku "Húsvísku ívafi" gæti þetta

 INGUD00Z "listaverk" heitið" hugsaði húsfreyja þar sem hún

  stóð á útidyratröppum sínum, og horfði út á bílaplan sitt

  í morgunsárið.

  Bóndi hafði þrælað henni á lappir fyrir allar aldir, til að

  aka henni til vinnu á sínum eðal "fjórhjóladrifna" vinnubíl.

  Tvíhjóladrifna drusluverkið sem húsfreyja annars brúkaði

  til að komast frá A til B og svo heim aftur, var fennt inni í

  bílskúr.

  Húsfreyja horfði á bónda sinn láta vaða aftur á bak yfir

  stóran skafl, þar sem nokkrar sekúndur sá fjórhjóladrifni

  sat fastur á "maganum", á meðan hjólin fjögur súrruðu

  vinalega í lausu lofti...súnkaði drossían síðan niður aftur og

  bóndi ók í glæsilegum sveig að tröppunum þar sem húsfreyja stóð.

  Húsfreyja óð fönn upp fyrir hné að bifreið bónda, og geispaði

  ógurlega er hún settist inn.

  Saknaði strax 20 mínúta svefnsins, sem fannfergið hafði haft

  af henni.

  Bóndi talaði í sífellu um glussa, snjómokstur og lykla að því

  virtist við sjálfan sig, nema notaði af og til nafnið Gunni.

  Húsfreyja gjóaði svefnþrungnum augum á bónda...."var hann

  að tapa sér, varla kallaði hann sjálfan sig Gunna"?

  Neipp, bóndi var kominn með litla dótaríið á eyrað á sér,

  og var að ræða við samstarfsfélaga sinn um verkefni dagsins

  á öldum símafyrirtækis.

  Húsfreyja dæsti mæðulega.

  SNJÓR.

  Og meira en nóg af honum.

  Datt þá í hug samræður sem hún hafði átt við 10 ára djásnið

  nokkrum dögum fyrir Jól, þar sem djásnið sagði eftirfarandi:

  "Mamma, við krakkarnir segjum að Guð sé í "freyðibaði" þegar snjóar

  svona mikið".

  Húsfreyja glotti að hugsun sinni í bílnum, " já, og notalegt hjá þér

  Almættinu að þurfa að vera brasa í freyðibaðsstússi beint

  yfir litla Fróni í miðri vinnuviku" sendi hún upp til himnaföðursins.

  "Gastu ekki æruverðugur, dúndrað þér í baðið fyrir Jól, svona til

  heiðurs fæðingu sonarins, og látið það duga"?

  "Kæra vinkona" kom svarið jafnskjótt mildilega og glettið, "sonur minn

  fæddist ekki í desember, þó þið elskulegir mennirnir haldið upp á

  fæðingu hans þá".  Hér hló hinn heilagi svolítið, " ef ég man rétt er

  hann fæddur í september, og þá líklega í merki Meyjunnar líkt og þú".

  Almættið ræskti sig og hélt áfram; "Enda var hann heiðarlegur,  mannúðlegur,

  fórnfús hugsjónamaður, vinnusamur, kærleiksríkur,

  gagnrýnin og pottþéttur líkt og margir í Meyjamerkinu, og það mættu

  margir taka sér hann til fyrirmyndar þarna hjá ykkur á jörðinni".

  Það var ekki laust við, að húsfreyju findist svolítill áminningartónn

  í rödd hins háheilaga.

  "Já,"  svaraði hún dræmt, " en það þýðir nú lítið að bera mig "arman

  fjármálavitleysing með 4 ára gamlan flatskjá" á skeri úti á miðju Ballarhafi,

  saman við son þinn, herra minn.... og það þó að ég sé í Meyjarmerkinu.

  Mín skástu og stærstu kraftaverk eru þegar mér tekst að hjálpa tíu ára djásninu

  með níu af tíu dæmum í heimalærdóminum í stærðfræði.  En þetta tíunda dæmi

  er oft svo hrikalega frústrerandi óskiljanlegt, að ég þyrfti hjálp frá Albert Einstein,

  til að fá botn í það".

  "Kæra vinkona" nú hló hinn guðlegi upphátt, "og heldur þú að

  þú fáir ekki hjálp frá mér einnig, þegar þið eruð að basla við

  stærðfræðina saman, mæðgurnar"?

  "Jú, það er akkúrat málið, æruverðugur, ég reikna með henni tvö

  dæmi og síðan reiknar þú næstu sjö með henni með mig sem millilið...

  og þá er bara þetta eina dæmi eftir sem "hvorugt okkar" kann þá að

  reikna....merkilegt nokk......(úps...húsfreyja hér að móðga Almættið...

  skíta upp á bak....reyndi að bjarga sér fyrir horn...), 

  en mér finnst nú reyndar algjört kraftaverk að klára heil níu dæmi".

  Almættið hló hjartanlega, "Altént ertu með húmorinn í góðum gír, vinkona

  og ég reikna með því að við förum að klóra okkur fram úr tíunda dæminu

  fljótlega, ef við leggjum saman höfuðin í bleyti.  En blessaðan snjóinn

  tel ég að trufli þig og landa þína lítið, þið eruð öllu vön".

  Og bóndi stöðvaði bifreiðina í snjóskafli fyrir framan vinnustað húsfreyju,

  og húsfreyja þakkaði farið og óð snjóinn inn.

  Húsfreyja tróð síðan slóða í fannfergið upp í Spöng eftir vinnu á tveimur jafnfljótum,

  keypti í matinn, og fór létt með.

  Nágranninn mokaði slóða að ruslatunnunni, svo sorphirðukarlar hirði

  ruslið-afleitt ef nýtt ár angar langar leiðir af rotnandi matarleifum.

  Truflar okkur ekki mikið snjórinn, ef við hjálpumst að.

  Góðar stundir.
 
                             Ave     Sigga


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2011 18:58:09 / sigga

Miðaldafár og...

   Bedoins_In_Saudi_Arabia... fjúkandi afhöggnir hausar með galdrabrennum

  og hverju ekki á þeim myrku tímum, komið í fréttir

  og sjálfsagt verið að rifja upp

  blóðþorsta og brjálæði í garð kvenna

  á þeim árunum" var það fyrsta sem húsfreyju kom í hug,

  er hún las fyrirsögnina á frétt þessari.

  Neipp.

  Alrangt.

  Húsfreyja að vaða í villu og svíma.

  Frétt frá Sádí-Arabíu á vorum dögum, á 21 öldinni.

  Kona hálshöggin fyrir kukl og galdra.

  Tarna er ljóti ófögnuðurinn í réttarkerfi Sáda.

  Þar þykir besta mál að menn duddi sér við að höggva höfuðin af fólki,

  fyrir hina ýmsu glæpi; þjófnaði, morð, nauðganir (ekki víst heldur,

  að fórnarlömb nauðgana sleppi lifandi, fremur en gerendur)

  og svo auðvitað fyrir höfuðsyndir eins og að afneita trúnni

  og fyrir það að kunna eitthvað fyrir sér í grasafræði.

  En húsfreyju þykir ekki líklegt að foreldrar kenni almennt

  börnum sínum galdra og kukl í henni Sádí, því trúin bannar

  allt slíkt stranglega og hausinn er að veði leggi fólk út í slíkt.

  Hins vegar kunna margir til verka með grös og jurtir,

  ljósmæður og læknar til forna brúkuðu slíkt óspart,

  og húsfreyja telur að slík kunnátta sé enn við líði

  víða um heim, þar sem heilbrigðiskerfið er bágt

  og aðeins á færi þeirra ríku að sækja slíka þjónustu.

  Galdrar og kukl?

  Varla.

  En blessaðir Sádarnir stíga ekki í miðaldarvitið.

  Brýna sveðjur sínar grimmt og spýta við tönn.

  Og hausar fjúka.

  Þjóð í fangelsi fornra siða og grimms hugsunarháttar.

  Því er ver.

  Góðar stundir á kærleiksríkri jólaaðventu.

 

                         Ave   Sigga


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2011 01:09:13 / sigga

Á Jólunum finnst köttum gaman...

  funny_cat_pictures_pc_3...fúmm...fúmm...FÚMM.

  Þrjá brjálaða hringi eftir veggjunum á stofunni.....VRÚMM...

  ráðast í fimmta sinn á kassann með jólaskrautinu....

  klór...skrap...nag...nag...KLÓR.. aftur á fljúgandi fart...VRÚMM..

  og fleygja sér fagnadi ofan í tóma pappakassann,

  sem á að fyllast af jólapökkum á leiðinni norður......"mjaaaavrrr...

  unaðslegt leikfang fyrir drottningu eins og mig".

  Breytast í ægilega grimmt tígrisdýr sem liggur í leyni

  fyrir bráð sinni...HVÆÆÆS....MJAVRRRR....

  Tíu ára djásnið hlær dátt að kisu sinnu, þó hún

  sé illa klóruð á höndum eftir brjálaðan leik við

  dýrið  alla daga síðan fyrsta í Aðventu.

  Húsfreyja, líka klóruðu á handarbaki eftir köttinn,

  lenti óvart í hlutverki hægfara, seinhugsandi kvöldmats

  "tígrisdýrsins" , ráfandi í villu og svima inni í miðjum

  (pappakassa-) frumskóginum, er búin að sópa

  gólfið 5 sinnum á dag síðustu vikuna.

  Pappírssnifsi í löngum ræmum, skreytir að öðrum kosti stofu hennar alla daga.

  Pappakassar eru allir reittir og að fara í hengla.

  Svo heimtar köttur ÚT. 

  Húsfreyja fegin að losna við pappakassaskaðvaldinn út

  svolitla stund, hleypir ketti út á pall.

  Köttur spígsporar á þófum sínum, eins og tískudrós á

  20 cm. pinnahælum í snjónum.

  Klikkast síðan algjörlega, þegar snjókornin falla niður

  jafnt og þétt á pallinn.

  ARRRGH! INNRÁS HVÍTU, KÖLDU OG BLAUTU GEIMVERANNA ER HAFIN.

  En "NO WORRIES"!

  DRÁPARINN  MIKLI "BRANDA HELLCAT SNOWFLAKEKILLER" er mætt.

  Og nú eru sko setið um snjókornin, stokkið á þau,

  og þau DREPIN!

  Húsfreyja reynir að finna stofugólfið sitt aftur, á meðan

  kötturinn trompast úti á sólpalli.

  Tíu ára djásnið hlær svo mikið af kattarrófunni, að hún tárast.

  En svo:  "Mamma, Branda vill komast inn aftur".

  Húsfreyja lítur í átt að stofuglugganum með kústinn á lofti.

  Á miðjum gluggapóstinum hangir læðan, angistin uppmáluð.

  "MJÁÁÁáááá.....hjálpið mér svöngum, vesælum, örmum og

  köldum ketti....mjáááá...ég á svo bágt".

  "Je ræt" hugsar húsfreyja, " búin að vera úti í 6 og 1/2 mínútu"!

  Djásnið hleypir kettinum inn.

  Sú ferfætta skokkar léttum skrefum framhjá  húsfreyju,

  sigri hrósandi, virðir hana ekki viðlits.

  Snöflar í sig nokkrum kornum úr matardall sínum inni í eldhúsi.....en..

  sér að "ferfætta hárlausa þjónusta" hennar var að bjástra eitthvað

  með "prikið" inni  í stofu......VRÚMM....þrír brjálaðir hringir eftir veggjum

  stofunnar, snarstans og ráðist á pappakassann með jólaskarautinu...osfr.

  Húsfreyja telur nú að hún sé komin með spádómsgáfu mikla, á gamals aldri.

  Spáir því að jólahreingerningum verði SEINT lokið þetta árið á

  heimilinu.

  Spáir því ennfremur að pappakassar verði ARFAÓVINSÆLIR undir jólaskraut

  á heimili húsfreyju...svo að jafnvel verði að splæsa í

  í eðal plastkassa frá Rúmfatalagernum þá Þrettándinn rennur upp.

  Og síðast en ekki síst, sér hún fyrir sér að tími sá sem

  heimiiskötturinn eyðir sofandi á rúmteppi inni í

  hjónaherbergi, "bak við luktar dyr", 

  muni LENGJAST að miklum mun yfir hátíðarnar.

  En gangi ykkur vel með jólaundirbúninginn, og megi

  öll ykkar gæludýr vera "pollrólegir pappakassahatarar".

          Ave    Sigga.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2011 21:10:10 / sigga

Sigursæl þjóð að lokum.

victorious Margt hefur verið misjafnt sagt um "heilaga" Jóhönnu og

  ríkisstjórn hennar, en það má hún eiga að hún hefur róið

  "lífróður" til þess að bjarga því sem bjargað varð í hruninu.

  Og þó húsfreyju sem öðrum Frónbúum gangi illa að finna

  "skjaldborgina" heimilanna, þá viðurkennir húsfreyja fúslega,

  að hún hefur það yfirleitt  þolanlegt og svo bara nokkuð ágætt af og til. 

  Á nóg að bíta og brenna, þó lífið hafi verið bæði auðveldara

  og fjárhagslega tryggara fyrir hrun.

  Hefur þjappað þjóðinni saman, að lenda í þessum hremmingum.

  Við styðjum við bakið á þeim sem minna mega sín, eftir sem áður...

  skiptir engu þó fjárhagurinn sé almennt bágari.

  Mottó húsfreyju er: "Ég er jafndauð fjárhagslega, þó ég

  gefi einhverjar 10- 15.000 krónur í hjálparsamtök eða líknarfélög

  tvisvar eða þrisvar yfir árið".

  Húsfreyja telur næsta víst að hennar ágæta frónverska þjóð

  muni lifa hrunið og kreppuna af, líkt og flestar aðrar hremmingar sem

  á hana hafa skollið.

  Við höfum lag á því að sigrast á flestum okkar erfiðu áskorunum með

  seiglunni, fúllyndinu, kaldhæðninni, samstöðunni og lífsgleðinni.

  Stundum detta ríkisstjórnir okkar niður á snjallar lausnir,

  og síðan rata þær einnig í tómar ógöngur, spillingarsukk og svínarí.

  Og þegar illa fer er velferðarsamfélagið okkar skorið niður....og skorið niður.

  Hagur okkar versnar um tíma og þjónustunni hrakar.

  Við erum þessu alvön.

  Spýtum í lófana.

  Borgum brúsann.

  Bölvum helvísku skítapakkinu á Alþingi.

  Hötum fjórflokkana.

  Erum brjáluð út í gjörspillt bankakerfið og stjóra þess með einhverja

  djö.... verðtryggingu á lánum, sem hvergi þekkist á nokkrum stað

  á jarðarkringlunni nema hér.

  Sendum fégráðugum og spilltum pappírssnepla-víkingum tóninn-

  glataður orðstýr þeirra vinnst ekki aftur.

  Og við lifum AF.

  Sigurinn er okkar, því við erum kjarni þjóðarinnar, ísinn og eldurinn,

  hugarorkan og framkvæmdaraflið.

  Góðar stundir.

            Ave    Sigga.


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.11.2011 22:23:53 / sigga

Af niðurskurði á hreyfifærni.

  funny-soldiers-1508Húsfreyja lá bakk í bælinu.

  Heilaræfillinn hafði að gömlum og góðum sið sent

  "ordrur" beint niður á vöðvaliðið í hægri öxl húsfreyju,

  og skipað því að reisa kerluna upp, og ýta henni fram úr

  rúminu.

  RÆS, var boðorð dagsins, enda klukkan að ganga 11 á laugardagsmorgni.

  Það var þá sem allt fór til andskotans.

 "SETUVERKFALL"! ! , orgaði verkstjóri axlarvöðva

  húsfreyju.

   "Þetta er er ekki að gera sig hérna hjá

  frúnni!  Hún er búin að bræða úr öllum

  leiðurunum (taugunum) og rústa

  helvíska stóra lyftikrananum (aðal-sininni)".

  Verkstjórinn spýtti  bálreiður á einn reittan "leiðarann" sem sendi frá sér

  med det samma, mergjaðar eldglæringar

  og krampakenndar bylgju eftir öxl niður í úlnlið og eftir hálsi upp

  í haus á húsfreyju.

  ÁÁÁ!

  Húsfreyju sundlaði af sársauka.

  Hefði steinliðið yfir hana ef hún hefði ekki verið útafliggjandi

  í rúmi sínu hvort eð.

  Hvað var að gerast?

  Heilaræfillinn var miður sín, og sendi með hraði

  sveit "sjúkraliða" (bólgusvara) niður á hægra axlarsvæðið.

  Þar var allt í helvísku báli og brandi, tjóni og tjöru, rúi og stúi.

  Aðallyftikraninn var ryðgaður FASTUR í síðustu stöðu, enda búin að

  bólgna út í tvöfalda stærð sína.

  Leiðarar flestir undir einhverju djö... fargi, klemmdir, óvirkir

  og tættir.

  Sjúkraliðasveitinni féllust hendur, þegar vöðvaverkstjórinn

  ullaði illskulega framan í hana, og sagði henni að

  drulla sér aftur upp í stjórnstöð, og láta andskotans

  "bossinn" (heilaræfilinn") koma viti fyrir frúna. 

  "Nú verður frúin að andskota sér

  til læknis í einum hvínandi hvelli,

  og ekkert djö... "þetta lagast-kjaftæði"!

  Vöðvaverkstjórinn var orðinn sótrauður í andliti af vonsku, pirringi

  og aðgerðarleysi:

  "Þangað til erum við strákarnir farnir í

  VERKFALL, og snáfið þið upp!

  STRÁKAR!  Komið!  Við tökum slag

  í félagsvist".

  Húsfreyju tókst með harmkvælum að koma sér fram

  úr rúminu.

  Hún var lent í bullandi niðurskurði á hreyfifærni

  í hægri öxl, og ekki bara hægri öxl.

  Hún var komin með myljandi niðurskurð á

  hreyfifærni í hálsi hægra megin einnig.

  Jaso.

  Nú voru góð ráð dýr.

  Húsfreyja skellti í sig einni tveimur bólgueyðandi verkjatöflum.

  "Húmbúkk"! , orgaði vöðvaverkstjórinn, og

  gaf í næsta spil í félagsvistinni.

  Húsfreyja náði í hitapokann sinn með erfiðismunum,

  sat í hálftíma með hann á hæ öxl sinni.

  "Nú hlyti þetta að fara að lagast".

  "Je RÆT"! , vöðvaverkstjórinn leit ekki

  einu sinni upp frá félagsvistinni.  Var að vinna.

  Húsfreyja var í öngum sínum.

  Og að drepast í öxlinni.

  Heilaræfillinn reyndi að höfða til heilbrigðar skynsemi

  sinnar, og laumaði hugmynd um læknisheimsókn

  að frúnni.

  Húsfreyja hafnaði svoleiðis VESENI samstundis.

  Auðvitað hlyti þetta að "lagast".

  "DREAM ON, hálfviti" , gargaði

  vöðvaverkstjórinn, og trompaði spaðaásinn.

  Heilaræfillinn fékk nærri því verki í vinstra heilahvelið af álagi og pressu:

  Einhvern veginn varð hann að fá frúna til að fara til læknis:

  "Ömm, kæra frú.  Afi yðar og faðir

  voru báðir gigtarskrokkar, og afinn

  meira að segja með hroðalega slitgigt.

  Vilduð þér nú ekki vera svo vænar og

  skreppa til heimilisdoktorsins og fá

  úr því skorið, hvort öxl yðar sé ónýt af

  sliti, eða hvort einhverju verði bjargað

  með sjúkraþjálfun eða aðgerð"?

  Hefði heilaræfillinn verið með hjarta, hefði hann verið með það

  í buxunum, svo stressaður og auðmjúkur var hann.

  "Hvaða stress er í gangi", húsfreyja var rasandi.

  "Þó ég sé með smá "stirðleika" í öxl eftir langa vinnuviku,

  er það ekkert að tapa sér yfir".

  "FÍFL", vöðvaverkstjórinn hló illyrmislega,

  um leið og hann gaf í næsta spil.

  "En kæra frú" , heilaræfillinn var gráti næst,

  ég er búin að missa alla stjórn

  á vöðvaliðinu í öxl yðar, og þeir

  eru allir farnir í verkfall...gerið nú

  þetta fyrir mig".

  Húsfreyja setti í brýrnar.

  Tarna var ljóta.

  Ekki gat hún mætt í vinnu með "hangandi hendi"

  á mánudag...varla að hún þyldi við í fríi heima

  um helgina.

  Ákvað að fara að skynsömum boðum heilaræfilsins,

  og kom sér til "doktorsins".

  Nú sést húsfreyja á blússandi fart á leið til sjúkraþjálfa

  tvisvar í viku, þar sem helvískur aðallyftikraninn er mýktur upp,

  og leiðararnir eru í "hljóðbylgjumeðferð".

  Vöövaliðið er aftur komið til starfa:  "Hún hefði

  nú mátt leyfa okkur að klára

  þriðju umferðina í félagsvistinni,

  frúin. En auðvitað er alltaf gleðilegt

  þegar fólk fer að skýrast í hugsun

  á gamals aldri og stíga í vitið"! 

  Einnig má sjá húsfreyju utan dyra flesta daga að loknum

  vinnudegi, íklædda sínum rauða kuldagalla,

  sveiflandi örmum á gangi eins og bolsévikki í her

  Stalíns á Rauða Torginu.

  Húsfreyja veit það fyrir víst, að heilaræfillinn hennar er

  alsæll.

  Húsfreyja og vöðvaverkstjórinn hins vegar, ræðast ekki við.

  Sættast kannski á Jólum.

  Kannski.

  Góðar stundir og hugið vel að heilsunni á köldum vetrarmorgnum....

  annars eru allir velkomnir í bolsévikkamarseringuna með húsfreyju.

                   Ave     Sigga.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.11.2011 20:00:44 / sigga

Botnlaus heimska...

FunnyHorse  ...einn ganginn enn, hjá fulltrúum atvinnurekenda að

  semja um svona "gífurlega háar" launahækkanir

  við fólk sitt.

  Djö....er að heyr'etta.

  Eru menn endanlega búnir að tapa sér?

  Og sjálfir fulltrúar atvinnurekenda!

  Að láta sér "detta í hug" að sauðsvartur almúginn

  þurfi á launahækkun að halda!

  Fáránlegt!

  Hvað með það þó kaupmátturinn hafi "HRAPAÐ" eitthvað?

  Og lánin hafi HÆKKAÐ.

  Og skuldirnar heimilanna hafi aukist.

  Og eignirnar hafi lækkað í verði.

  Og þó búið sé að skera niður hjá öldruðum, öryrkjum, geðsjúkum, og

  sjúkum......og skera niður.....og skera enn meira niður.

  Verðbólga aukist.

  Krónan hafi fallið...fallið.....og fallið!

  Þó búið sé að slökkva öll ljós á Reykjanesbrautinni.

  Setja upp kreppuhöfn í Landeyjasandi "ófæra" skipum....sér í lagi Herjólfi.

  Afskrifa einhvern helvískan haug af milljörðum fyrrum

  bankaeigenda og útrásarvíkinga, svo þeir geti nú

  pottþétt gefið frúnum Rolex í jólagjöf og unglingunum

  nýjasta "eplið, æpoddinn og snjallsímann" í jólagjöf.

  Já, hvað með svona SMOTTERÍ?

  Hrikalega búnir að skíta upp á bak, fulltrúar atvinnurekenda.

  Svona bara gengur ekki, strákar!

  Þetta skítapakk sem moðast í láglaunastörfunum,

  á ekki skilið að fá "alla" þessa þúsund kalla í launahækkun.

  Kann ekkert með peninga að fara þetta láglaunalið.

  Eyðir þessu öllu í eittthvert fánýti eins og salti í grautinn,

  kuldaskó á krakkana sína og í hita og rafmagn.

  Dettur ekki einu sinni í hug, láglaunadótinu, að reyna að

  fjárfesta  í ódýrustu Rolex-úrunum, hvað þá litlu, demantskreyttu,

  penu úri frá DIOR.

  Neipp, og vill frekar belgja sjálft sig og krakkana sína út af mat

  í heila viku þetta lið, en að skreppa á föstudegi í lítinn léttan salatbröns

  á Borginni með vinnufélögunum.

  Og glætan að það hafi rænu á að splæsa einu flottu

  veski úr krókódílaskinni á tengdamúttu í jólagjöf, NEIPP!

  Kaupir hræbillegar vetrarbomsur á götumarkaði í Hagkaup á kerluna.....

  og handska með....úr gervileðri.

  Svei!  Og aftur SVEI!

  Þetta er svaðalega hrikalegt.

  Svona vonlaust lið, þarf í mesta lagi einhverja hundraðkalla

  í launahækkun "annað hvert ár".

  Alveg nógu gott á svona fólk sem drullaði algjörlega upp á bak í góðærinu

  og keypti sér heilan "flatskjá" með myntkörfuláni.

  Húsfreyju er gróflega misboðið, þó hún sé ein af láglaunapakkinu sjálf

  og hafi asnast til að þiggja einhverja þúsundkalla í launahækkun eins og allir hinir.

  Ja, svei!  Hún ætti að sjá sóma sinn í því að afþakka eins og rúmlega helming

  af launahækkun sinni....ef ekki alla...nema kannski 300 kalli fyrir

  blandi í poka á laugardögum.

  Og húsfreyja segir enn og aftur eins og Tóti Pé

  "aðal hagfræðinganna" í Seðlabanka (sumra) landsmanna:

  HVERNIG DATT YKKUR ÞETTA Í HUG?

  Góðar stundir, og mikið erum við Frónbúar heppnir að eiga svona

  góðan Seðlabanka og ENN BETRI aðalhagfræðing til að hafa

  "fjármálavit" fyrir okkur.

                          Ave     Sigga


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2011 20:29:25 / sigga

En svo bara fundust...

  ...þeir helvískir aftur!
 
   Hvað er svo glatt sem góðra "þingmanna-fundur"....

 100 3451

  HALLELÚJA!

  Þingmannasveitin sunnlendingana komin fram.

  Búin að vera týnd Eyjamönnum mánuðum saman,

  ef ekki árum, svo þeir hófu dauðaleit.

  Auglýstu með heilsíðu í Mogganum.

  EUREKA!

  Þingmennirnir þar sunnan heiða fundnir, komnir fram, komnir í ljós.

  Rak upp á fjörur Eyjamanna í einum hvínandi hvelli, eftir

  Moggaauglýsinguna, svo nú skal fundað.

  Það verður fundað um beljandi stórfljót með

  læti og aurburð inn í Landeyjahöfn.

  Um svínslega illgjörn eldfjöll undir jöklum að spúa ösku

  ofan í Landeyjahöfn.

  Um stórstreymis djöfulegan öldugang og sandrótshavarí í Landeyjahöfn.

  Um risastóran, djúpristandi "ælukopp" sem ætlað er að komast inn í

  Landeyjahöfn í öllum veðrum, í stórstreymi, með öskuspúandi

  eldfjall sem hafnarvörð, og lítil, nett jökulhlaup í Markarfljóti.

  Eyjamenn eru heitir.

  Þeir vita aldrei hvort leið þeirra liggur um ægifagrar sveitir

  Rangárvallasýslu eða hvort þeir geta skroppið í gólf

  í Þorlákshöfn, á leið sinni í höfuðborgina.

  Allt í tómri óvissu.

  "Hvert á að sigla í dag"? Kvíðvænlegasta og ömurlegasta spurning sem

  starfsmenn Herjólfs heyra.

  Þjást sjálfsagt allir sem einn af OFSA-KORTER-FYRIR-FERÐ-KVÍÐA, starfsmenn

  þess góða skips.

  Jamm, en gleður húsfreyju ósegjanlega, að þingmenn suðurlands

  skuli hafa komið í leitirnar.

  Var farin að hafa verulega áhyggjur að þeir hefðu

  týnst á leiðinni út í Eyjar, á þessum stutta tíma frá opnun

  Landeyjahafnar, og væru sem villuráfandi rollur,

  soltnir, veðurbarðir og illa til reika, "í óskilum "

  á einhverri Fjallabaksleiðinni.

  Vonar húsfreyja að góðar lausnir á samgöngumálavanda

  Eyjamanna finnist á fundi þessum, og að allir gangi sáttir frá borði.

  Verst ef að þingmennirnir TAPASt aftur á leiðinni upp á land....

  En kannski Eyjamenn splæsi bara undir þá flugvél...hehehe.

  Góðar stundir, og vonandi fer fram reglulegt "manntal" niðri á Alþingi....

  .....

  ..slæmt ef finnast fleiri sauðir af fjalli á haustin en þingmenn á Alþingi.

           Ave    Sigga

 .


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2011 20:03:36 / sigga

Svo týndust þingmenn!

 -funny-pictures-1308613536Suðursveitin þingmannanna týnd og tröllum gefin?

  Kannski bara stóra strand mánuðum saman í

  mynninu á Landeyjarhöfn?

  Að villast á tjaldstæðinu í Þorlákshöfn?

  Eða máske bara lögst í ferðalög um landið?

  Hefur þá ef till dagað uppi á kræklóttum og lítt

  akfærum vegum Vestfjarða?

  Orðið úti uppi á miðri Vaðlaheiði?

  Hehehehe..bara snilld þessi auglýsing Eyjamanna.

  Samgöngumál eru í svaðalega djúpum skít uppi á

  litla Fróni, af og til... oft og iðulega... nánast alltaf í Landeyjahöfn

  ....og svo leggjum við niður

  innanlandsflugið eða fækkum flugferðum öðrum kosti.

  Húsfreyja sendir Eyjamönnum enn og aftur baráttukveðjur.

  Góðar stundir og góða ferð þá þið skreppið í ferðalög um litla Frón.....

  Tekur langan tíma!

IMG 1628  Ave   Sigga.


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2011 19:52:22 / sigga

Hvað saðð'ann?








IMG 1591 
 Marinó Tý fimm ára var mikið niðri fyrir.

  Enda Kafteinn Kolbeinn nýbúinn að ropa ofan

  í flugvélatankinn, á hrapandi flugvélinni, með

  Tinna og Tobba innanborðs, á meðan vondu karlarnir tveir

  svifu til jarðar í fallhlífum.

  Systurdóttir var á 200 kílómetra hraða að þýða og talsetja fyrir soninn,

  því myndin var ekki með íslensku tali heldur texta.

  Í þrívídd samt.

  Marinó var með rödd sína stillta á HÆSTA styrk, svo

  bíóáhorfendur í fimm bekkja radíus fengu "kommenta" hans beint í æð.

  "Það blæðir líka úr eyrunum á mér",  Væla Veinólínó ekki síður að

  misbjóða viðkvæmum hlustum Marinós en Kafteins Kolbeins.

  "Ó MÆ GOD", Tinni fljúgandi í loftköstum á eftir bófunum,

  í brjálaðri tilraun að ná þremur bréfsnifum.

  "Hvað saðð'ann, mamma"?

  Það var mikið hlegið, og spennan var ærandi í bíósalnum.

  Tinni og Kolbeinn ekki að klikka.

  Náði húsfreyju alveg, myndin.

  "Skeggjaðir hertir þorskhausar" og Rögnvaldur rauði fékk að

  kenna á reiði Kolbeins.

  Húsfreyja hló hátt og mikið, og skemmti sér konunglega.

  Tíu ára djásnið vissi ekki góða stund, hvort hún ætti að vera vandræðaleg

  yfir háværum kommentum Marinós eða gassahlátri móðurinnar,

  en ákvað að lokum að gleyma sér í kvikmyndinni.

  Systurdóttir þýddi og talsetti í gríð og erg.

  "Ég skil núna, hvað þú gekkst í gegnum með mig, þegar þú

  bauðst mér á Disneyteiknimyndirnar hér í den, Sigga, og þurftir að þýða

  hverja einustu setningu", systurdóttir þurr í munni og sár í

  hálsi í bíólok.

  Það hlakkaði örlítið í húsfreyju, sem enn er að berjast við

  krónískt hæsi frá árunum 1990-1995 eða 6 , þegar

  einhverjum snillanum í kvikmyndabransanum

  datt LOKS í hug að "talsetja" Aladdin.

  Sérlegur "talsetjari" systurdóttur þessi ár, þegar Disneyfabrikkan

  ungaði út nýjum teiknimyndum jafnt og þétt, einni eða tveimur á ári.

  Hélt uppi Apoteki Þorlákshafnar árum saman með

  Strepsils hálstöflukaupum, húsfreyja

  Fór með einn Strepsilspakka á sólarhring, í heila viku eftir "talsetningu"

  fyrir systurdóttur.

  Og stundum dugði ekki ein bíóferð...

  "Sidda mín, þetta var frábær mynd, eigum við ekki að fara

  aftur næsta laujardag"?

  Hefur húsfreyja minnst á það , að henni finnst "íslenskt talsetning"

  á barna- og teiknimyndum, einhver mesta snilld sem hefur

  verið upp fundin í voru litla landi.

  En draumar og vonir húsfreyju um frama sem heimsfræg söngkona

  dóu drottni sínum, steindrápust, og voru jarðaðar þessi

  "talsetningarár" hennar með systurdóttur.

  Hins vegar er systurdóttir eldheitur áhugamaður um kvikmyndir í dag,

  allt frá teiknimyndum upp í drama, grín og morðgátur.

  Kannski á húsfreyja örlitla hlutdeild í áhuga hennar þar með,

  fyrst hún fórnaði frægð og frama og RÖDD sinni fyrir

  gleði lítillar stúlku í bíó.

  Hver veit?

  En vissulega doldið GAMAN að systurdóttir skyldi

  þurfa að "talsetja" sjálfan Tinna fyrir Marinó.

  Finnst húsfreyju..hehehehehe.

  Hefði viljað heyra systurdóttur þýða og talsetja

  enska orðasambandið hans Kaftein Kolbeins: 

  "Þúsund skrykkjóttar tindabykkjur í þorskavíti".....hehehe.

  Kvikmynd þessi um Tinna og félaga er tær snilld að mati húsfreyju,

  svo kíkið endilega í bíó.

  EN AÐVÖRUN:  Fólk með VIÐKVÆM eyru ætti að

 hafa með sér bómullarhnoðra...til að stöðva

  "eyrnablæðinguna".

  Góðar stundir og látið ekki frostið bíta ykkur í tærnar.

                              Ave     Sigga.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.10.2011 20:23:42 / sigga

Sælla er....

Jesus-christ_1_1195091351 ...að selja en þiggja".....

  Eða nei.

  Hvurnig var aftur þetta fína orðtak úr Biblíunni?

   "Sælla er að gefa en selja".....nei, það

  er eitthvað öfugsnúið við þetta hjá húsfreyju.

  "Sælla er að þiggja en selja".....bölvað rugl er'etta.

  Húsfreyja viðurkennir fúslega að hún er hálfdofin

  í hausnum, eftir að sjúkraþjálfi hennar togaði og teygði

  á háls hennar og herðum í dag.

  Sjúkraþjálfinn og húsfreyja ræddu Gaddafi steindauðan í miðju hálstogi...

  "Sælla er að skjóta Gaddafi en rökræða við hann"......NEIPP!

  Amerískt, en ekki rétt orðtak.

  Húsfreyja er bara ekki með öllum mjalla, að muna ekki svona

  auðvelt mál.

  "Sælla er að selja en gefa"....aaaaarrrgh.

  Þetta er ekki að gera sig.

  Sjúkraþjálfi er að losa um "klemmdar" sinar og taugar

  í hægri öxl, hálsi og handlegg húsfreyju.

  Sjálfsagt náð að losa hressilega um og hleypa upp í haus

   á húsfreyju einhverju svaðalegu magni af súrefni í dag.

  Húsfreyja þá með hrikalega súrefniseitrun í hæ heilahveli, og það

  fyrsta sem útstrokast úr minni hennar eru orðtökin

  úr Biblíunni, sem hún lærði hér í den.

  "Sælla er að hækka tekjuskattinn en lækka laun bankastjóra....

  Neipp, þetta er mottó ríkisstjórnarinnar í kreppu.

  "Sælir eru útrásarvíkingar því þeirra eru milljarðarnir í

  bönkum Kyrrahafseyja"....

  Jaso, komin með Fjallræðuna í hönk líka, húsfreyja.

  Hún á sér vart viðreisnar von úr þessu, konan.

  En fínt framtak hjá Kross- og Detox-hjónunum.

  Góðan fatnað á að nýta, og því ekki selja hann, svo

  aðrir njóti, ef þú getur ekki notað hann sjálfur/sjálf.

  Endurnýting er boðorð dagsins.

  Góðar stundir, og munið að....

 

  SÆLLA ER AÐ GEFA EN ÞIGGJA.

 

  Hehehe, náði ykkur næstum.

             Ave    Sigga


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 61
Dagatal